Komin aftur til Stonetown a Zanzibar eftir yndislega daga i luxushotelinu vid strondina. Thar var litid annad gert en ad liggja i leti og sleikja solina. Komin med agaetis skammt af thvi nuna. Sagdi bless vid Freydisi og Jonas sidasta fimmtudag og i morgun kvaddi eg svo hann Lalla sem er buinn ad vera ad tvaelast med mer herna i taepan manud. Svo kom Asta fraenka i fyrradag. Thad var ofsa gott ad sja hana.
Forum i gaer i kryddferd um eyjuna thar sem vid saum hvernig hinar ymsu kryddtegundir eru raektadar, en Zanzibar var her adur eitt helsta kryddraektunarsvaedi i heiminum. I ferdinni fengum vid lika ad sja nidurgrafna hella sem notadir voru til ad fela traela i lok tharsidustu aldar og byrjun theirrar sidustu. Eftir ad Bretar logdu thraelahald af "stalust" Arabar til ad halda thvi afram og foldu thraelana i hellunum adur en their fluttu tha ur landi. Rymid var ekki mikid staerra en 10 - 12 fm og voru thar geymdir 40 - 50 thraelar. Skelfilegt. Saga svarta mannsins er oft ansi sorgleg.
I nott er ferdinni haldid til Dar es Salaam med ferju. Morgundeginum eydum vid thar en a thridjudaginn er ferdinni heitid med lest til Malawi.
Uuups, nettiminn buinn, nanari frettir sidar!
Kossar og knus fra Zanz,
Katrin