Katrín í Namibíu
 
 
Mosi-oa-Tunya
15.2.06
Jaeja, tha erum vid komnar alla leid til Livingstone, sem er vid landamaeri Zambiu og Zimbabwe. Baerinn stendur vid hina storfenglegu fossa Mosi-oa-Tunya, betur thekktir sem Viktoriufossarnir sem eru staerstu fossar i Afriku - og tho vidar vaeri leitad. Mosi-oa-Tunya er hid upprunalega nafn og kann eg mun betur vid thad en nafnid sem Dr. Livingstone gaf fossunum fyrir rett rumum hundrad og fimmtiu arum sidan og nefndi tha eftir Viktoriu drottningu - sem i sjalfu ser hafdi litid med fossana ad gera. Nafnid Mosi-oa-Tunya thydir a frummalinu "The Smoke that Thunders" sem gaeti utlagst a islensku sem "hinn drynjandi reykur" en i fjarlaegd sest einungis vatnsudinn sem sprautast morghundrud metra upp i loftid og drunurnar i fossinum heyrast i morghundrud metra fjarlaegd. Svo nafnid a vel vid. Fossarnir eru engin sma smidi 1,6 km a breidd og rumlega hundrad metra djupir og geisast med ognarhrada nidur i djupt gljufrid sem their hafa sorfid i aldanna ras.
Hingad til Livingstone komum vid sidastlidinn sunnudag, eftir tveggja daga keyrslu fra Malawi.

Gistum a leidinni i Chipata, sem er vid landamaerin ad Malawi, og Lusaka, sem er hofudborg Zambiu. Gerdum ekki mikid annad en ad sofa a thessum tveimur stodum. Vid vorum svo ansi seinar ad kaupa okkur mida fra Lusaka til Livingstone, tvo saeti eftir i rutunnu svo vid gatum ekki setid saman. Ekki kom thad tho ad sok thvi sessunautur minn, han Tom, var alveg hreint agaetur og spjolludum vid saman alla leidina. Hann er fra Zambiu en hefur buid i 10 ar i Bandarikjunum og var bara i heimsokn i heimalandi sinu. Asta var aftur ekki eins heppin, lenti vid hlidina a manni sem var svo leidinlegur ad hun akvad ad kenna honum sudoku til ad halda honum uppteknum a medan a ferdinni stod - snidug lausn thad!

Thegar vid komum a afangastad komum vid okkur beint a bakpokaferdalangaheimilid Fawlty Towers. Thetta er yndislegur stadur - meira ad segja okeypis kaffi, sem kemur ser vel fyrir kaffifikla eins og okkur, og ponnukokukaffi a hverjum degi kl. thrju, semsagt voda heimilislegt og notalegt. Thad sem eftir lifdi dags skodudum vid okkur um i Livingstone og forum svo snemma i hattinn. Daginn eftir forum vid og kiktum a fossana, og va, their voru ekkert sma! Fyrsta manneskjan sem vid hittum vid fossana var han Tom, sessunautur minn a leidinni til Livingstone. Thad urdu fagnadarfundir vid hittinginn og slost hann i for med okkur Astu thegar vid skodudum fossana. Eftir ad hafa skodad naegju okkar forum vid a stora, flotta turistahotelid og fengum okkur dyran hadegisverd - sem Tom svo splaesti a okkur, rausnarlegur! Fengum far hja Tom til baka, hann syndi okkur gamla skolann sinn i Livingstone og for svo med okkur i heimsokn til tengdafodur sins sem a nokkur hotel i baenum. Gaman ad thvi.

Naesti dagur, i gaer, var svo hapunkturinn. Forum i rafting nidur eftir Zambezi anni, sem er ain sem rennur ur fossunum. Thad var geeedveikt. Veit ekki hvada ord eg a ad nota til ad lysa thvi, en thad var aedi. Vorum med klikkadan guide sem gerdi ekki annad en ad koma okkur i "lifshaettu", t.d thegar eg og Marisha vorum einar eftir i batnum i staerstu fludunum og vorum fastar i straumnum i nokkrar minutur. Thad var frekar skelfilegt, en tvimaelalaust hapunkturinn. Ain rennur eftir djupu gljufri og a leidinni upp var klafur - byggdur ad afriskum stadli, bremsulaus - grinlaust, leidin upp med klafnum var thad skelfilegasta sem eg upplifdi thann daginn, uff.

En jaeja, nu fer timinn minn herna a netinu ad verda buinn. A morgun er stefnan tekin til Zimbabwe, aetlum ad sja fossana theim megin fra lika, thar sem their eru alveg a landamaerunum. I Zimbabwe er politiskt og efnahagslegt astand vist ekki eins og best verdur a kosid, en mer skilst ad ferdamenn seu latnir i fridi. Thadan aetlum vid svo ad koma okkur til Botswana.

Bless i bili...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel