Katrín í Namibíu
 
 
Hofdaborg...
9.3.06
Komnar alla leid a lokaafangastadinn fyrir Kenya - S-Afrika! Hreint otrulegt! Thetta hefur lidid svo hratt ad eg a ekki til ord! Forum i heimsins lengstu rutuferd til ad komast hingad, alla leid fra Windhoek. Tok 20 klukkutima. Thad for samt agaetlega um okkur og vid nadum ad sofa sma. Drifum okkur a bakpokaferdalangaheimilid Ashanti thegar vid komum, sem er langflottasta gitiheimilid sem vid hofum verid a hingad til held eg bara.

Hofdaborg er otrulega skemmtileg borg, kurir undir Table Mountain sem gnaefir tignarlegt yfir borginni. Byggingarnar likjast fremur thvi sem gerist i Evropu og a gotum uti ser madur fleira hvitt folk en svart, ekki ferdamenn heldur afkomendur Hollendinga, Englendinga, Frakka og Thjodverja sem hosludu ser voll her fyrr a oldum. Hviti madurinn hefur verid alsradandi i S-Afriku i aldanna ras og ekki fyrr en 1990 sem baratta theirra sem ekki tilheyrdu hinum hvita kynstofni bar arangur og adskilnadarstefnan var aflogd. Thann 11. februar thad ar var Nelson Mandela, frelsishetja S-Afriku, latinn laus ur fangelsi thar sem hann hafdi setid i 27 ar asamt morgum odrum sem hofdu unnid ser thad eitt til obota ad motmaela adskilnadarstefnunni. Fram ad thvi hafdi hver kynthattur haft sitt svaedi i borginni til ad bua a og stranglega bannad fyrir svartan mann ad koma a busvaedi theirra hvitu og ofugt. Skelfilegt. Aetla ekki ad fara nanar ut i sogu S-Afriku ad svo stoddu en hun er ekki falleg. Her finnur madur semsagt varla fyrir thvi ad madur se i Afriku... ekki fyrr en madur kemur i fataekrahverfin, hverfin sem svarta og litada folkinu var uthlutad. Forum i skipulagda turistaferd thangad i dag. Thar sa madur hina hlidina a thessari annars einstaklega fallegu borg og i raun thad sem flestir ibuar borgarinnar bua vid - fataekt. Folk byr i skylum og a varla i sig ne a. Kiktum i skola sem er til husa i gamum - thar sungu bornin og donsudu fyrir okkur og virtust hafa gaman ad heimsokninni, kiktum svo til konu sem rekur gistiheimili - hvarfladi nu ad okkur ad sofa thar eina nott en haettum svo vid, forum svo i heimsokn til manns sem byr til blom ur kokdosum og ad lokum kiktum vid i leikskola thar sem bornin sungu lika og donsudu fyrir okkur. Mjog gaman en oneitanlega sorglegt ad sja adstoduna sem thau hafa.

Gerdum tilraun til ad klifa Table Mountain i gaer. Voknudum fyrir allar aldir til ad na upp adur en thad yrdi obaerilega heitt. Thad var mjog hvasst thegar vid logdum i hann og skyjabakki yfir ollu fjallinu en vid akvadum ad lata thad ekki a okkur fa, upp aetludum vid. Thegar vid vorum komin um halfa leidina upp og vindinn ekkert ad laegja og skyjabakkinn ad aukast ef eitthvad var var okkur haett ad litast a blikuna, fengum okkur saeti i hlidinni og smokkudum adeins a nestinu okkar. Medan vid satum ad snaedingi gengu ad okkur thrir gongugarpar. Vid spurdum tha ut i adstaedur og their sogdu ad thad vaeri ekkert vit i ad halda afram, vindurinn mun meiri en venjulega, 50 hnutar, og thoka og kuldi a toppnum auk thess sem leidin sem vid forum vaeri ein su erfidasta upp a fjallid. Eftir ad hafa heyrt thad akvadum vid ad vera ekkert i hetjuleik lengur og snerum vid. Fengum ad vita thad seinna um daginn ad klafurinn hefdi ekki einu sinni farid upp vegna vedurs, svo eg er fegin ad vid snerum vid.

Daginn thar a undan forum vid ut i Robben Island thar sem Mandela eyddi 18 af 27 arum aefi sinnar i fangelsi. Leidsogumennirnir thar voru fyrrverandi fangar, madur fekk sting i hjartad thegar their lystu adstaedum tharna - hreint otrulegt hvad mannskepnan getur verid grimm.

Jaeja, verd thvi midur ad haetta nuna, gaeti haldid endalaust afram um sogu S-Afriku en eg held eg segi thetta gott. A morgun er stefnan tekin a Godrarvonarhofda og daginn thar a eftir i vinsmokkuarferd um vinherudin her i kring. Ekki amalegt.

En hei, eitt ad lokum, thad litur allt ut fyrir ad eg verdi husnaedislaus thegar eg kem heim til Islands a ny. Veit einhver um snidugan stad handa mer ad bua a? Allt er vel thegid svo framarlega sem thad er i Reykjavik, helst midsvaedis og laust fra lok mars/byrjun april ...og svo eg opinberi thad nu a netinu, tha er eg vaentanleg heim ad kveldi 25. mars!

Kossar og knus fra Hofdaborg!

Katrin
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel