Kenya – Tanzania – Malawi – Zambia – Zimbabwe – Botswana – Namibia – Suður-Afríka – Kenya
...hringurinn fullkomnaðist s.l. þriðjudag þegar við lentum eldsnemma um morguninn í Nairobi. Samkvæmt upphaflega planinu ætluðum við að taka flug til Nairobi í dag, fimmtudag, en við vorum búnar að komast að því að það væri ein breyting á flugi innifalin í verðinu. Þar sem við vorum búnar að gera meira og minna allt sem okkur langaði að gera í Höfðaborg (þ.e. Robben Island, fátækrahverfin, Table Mountain, vínsmökkun, Góðrarvonarhöfði, mörgæsaskoðun, festival á Longstreet, versla... o.f.l.) ákváðum við að færa flugið fram um nokkra daga og lengja þannig dvöl okkar í Kenya. Mánudagurinn hefði verið ákjósanlegastur til ferðalaga en vegna hjólakeppni sem fram fór í Höfðaborg var fullt í öll flug til og frá borginni í viku svo við neyddumst til að taka rútu til Jóhannesarborgar til að ná flugi þaðan. Önnur tuttugu tíma rútuferð. Við erum nú orðar svo vanar löngum rútuferðum svo þetta var lítið mál, ég steinsvaf nánast allan tímann svo ég man tæpast eftir ferðinni. Vorum heppnar að fá sæti í vélinni til Nairobi nóttina á eftir, vorum reyndar komnar ansi snemma á flugvöllinn en hver segir að það sé leiðinlegt að hanga á flugvöllum.
Lentum semsagt í Nairobi eldsnemma á þriðjudagsmorgni og eftir að hafa borðað bestu pönnukökur í heimi drukkið besta kaffi í heimi á Java Coffeehouse í Nairobi og hoppuðum við uppí matatu og brunuðum eftir hristiveginum alla leið til Greensteds. Mikið var nú gott að koma heim á ný eftir þetta langa ferðalag um leyndardóma Afríku, knúsa alla nemendur mína og samstarfsfólk og sofa í rúminu mínu.
Sýndi stelpunum Nakuru í gær, fór með þær til saumakonunnar minnar sem ætlar að sauma á þær afrískt dress, fórum svo á munaðarleysingjahælið í heimsókn og um kvöldið fórum við út að borða með henni Karen meðleigjanda, mjög gaman. Núna er ég búin að senda stelpurnar í Lake Nakuru, þjóðgarðinn, á meðan ætla ég að hafa það gott hérna í skólanum og hitta þær svo niðri í bæ á eftir – ætla að sýna þeim markaðinn þar sem maður getur keypt merkjavörur á 50 kall íslenskar, ekki amalegt það.
Á morgun er ferðinni svo heitið til Kisumu að heilsa upp á Jowi og fjölskyldu, þar sem ég eyddi jólunum þið munið. Hlakka mikið til að hitta Jowi og stóru fjölskylduna hans aftur!