Nu sit eg i Windhoek og skrifa, komum hingad fyrir tveimur dogum sidan, og i fyrsta skiptid var bara nokkud erfitt ad komast a milli stada.
Semsagt...
Vid tokum rutu fra Maun, thadan sem thid heyrdud i mer sidast, til Ghanzi sem er mitt a milli Maun og landamaeranna ad Namibiu, thad gekk bara vel nema hvad rutan for ansi seint af stad svo vid vorum ekki komnar til Ghanzi fyrr en klukkan ad ganga tiu, sem er mjog seint i Afriku, ordid koldimmt og svona. Drifum okkur a gistiheimili sem LP benti okkur a, sem var eiginlega bara heimagisting. Folkid thar sagdi okkur ad rutan ad landamaerunum faeri klukkan eitt, svo vid tokum thvi rolega um morguninn og vorum maettar a rutustoppid kl. tolf. Thar bidum vid og bidum og bidum og bidum og aldrei kom rutan. Eftir ad hafa bedid til kl. thrju akvadum vid ad thetta gengi ekki lengur svo vid akvadum ad splaesa i taxa og fengum thysk fedgin i lid med okkur. Nadum ad gera agaetis dil og logdum af stad i trodfullum bilnum aleidis til landamaeranna. Billinn for hikstandi af stad og virtist varla aetla ad hafa thad af ad fara i gang. Eftir ad hafa keyrt i um tiu minutur var okkur haett ad litast a blikuna, farid ad rjuka ur bilnum og eg veit ekki hvad. Svo vid sogdum bilstjoranum ad stoppa og lata okkur ut. Svo vid stodum eftir fjogur saman i hellirigningu uti a thjodvegi i Botswana freistandi thess ad geta hukkad far ad landamaerunum. Eftir ad um tiu bilar hofdu keyrt framhja akvadum vid Asta ad taka ekki sensinn a ad fa bil ad landamaerunum og hukkudum okkur far aftur til baka. Okkur letti thegar fyrsti billinn sem var a leidinni inn i baeinn tok okkur uppi, auk thess sem vid jukum a sens fedginanna ad fa far ad landamaerunum, tveir hukkarar eiga meiri moguleika en fjorir. Svo vid forum aftur a sama gistiheimili og adur og akvadum ad lata reyna a ad komast i burtu daginn eftir.
Daginn eftir a sama tima forum vid ad rutustoppinu og freistudum thess ad na rutu ad landamaerunum. Tha fengum vid ad vita ad skyringin a rutuleysinu vaeri ad rutan var bilud - eina rutan sem for thessa leid - og engin leid ad komast ad hvenar hun kaemi a gotuna a ny - Afrika i hnotskurn. Svo vid brugdum a thad rad ad koma okkur fyrir vid thjodvegin og hukka okkur far. Thad voru fleiri snidugir eins og vid svo vid vorum tharna i hopi innfaeddra ad leita ad fari - thar sem engin ruta hafdi farid i nokkra daga. Eftir ad hafa verid i um tvo tima kom gamall og gudhraeddur madur a pallbil sem hafdi miklar ahyggjur af okkur. Hann var ekki a leidinni ad landamaerunum en akvad ad skutla okkur og taka einungis fyrir bensinu fyrir. Okkur fannst thad mjog vel bodid svo vid thadum thad med thokkum. Thegar vid hoppudum aftan a pallbilinn hja honum thutu allir hinir ad sem bidu eftir fari og vildu fa far lika, svo vid Asta vorum komnar i hlutverk vagnstjorans og thurftum ad akveda hverjir fengu far. Vid akvadum ad fara eftir hudlit a folki... uhm... nei ekki alveg, akvadum ad their sem vaeru med litinn farangur fengu ad fara med og a endanum satum vid aftan a pallinum i felagsskap 10 annara og logdum af stad ad landamaerunum. Ferdin byrjadi vel, thad for agaetlega um okkur Astu og alla hina aftan a pallinum. Eftir um halftima vard Astu litid inn i bilinn thar sem madurinn sat vid styrid og sa hvar hann hafdi bjor um hond. Okkur stod nu ekki alveg a sama en akvadum ad segja ekkert. Stuttu sidar finnst okkur hann keyra otharflega hratt og rasa otharflega mikid yfir a hina akreinina, fram og til baka. Astu verdur litid inn og ser hvar hann er ad vefja ser sigarettu med hvoruga hendina a styrinu. Stuttu seinna forum vid ad finna sterka marihuana lykt. Okkur fannst thetta nu ekki mjog snidugt en satum sem fastast thratt fyrir thad. I allt reykti vinurinn fjorar jonur og keyrdi ad medaltali a 120 km hrada. En vid komumst a leidarenda, tho ad a timabili helt eg ad thetta yrdi min sidasta bilferd.
Komumst yfir landamaerin til Namibiu rett fyrir myrkur. Drifum okkur inn a tjaldstaedid sem var vid landamaerin og fengum okkur litinn kofa til ad gista i. I naesta kofa voru sudur afrisk hjon ad grilla. Thad vildi svo til ad thau voru a leid til Windhoek eins og vid svo vid fengum ad sitja i hja theim. Theim leist samt ekkert a ad vid vaerum ad hukka okkur far, sogdum ad vid yrdum ad passa okkur thad vaeri svo mikid af glaeponum i Afriku - svortum sko, thessir hvitu vaeru i lagi. Vid attum ekki til ord, hofdum aldrei ordid varar vid jafnmikinn rasisma. Hjonin sogdust leggja af stad upp ur solaruppras svo vid sogdumst hitta thau svona um sexleytid. Klukkan fjogur um nottina bonkudu thau a dyrnar hja okkur og korteri sidar vorum vid lagdar af stad aftur i skotti a litlum flutningabil. Thar satum vid naestu thrja og halfa klukkutimann og thad for bara alveg agaetlega um okkur, horfdum a solarupprasina og veltum thvi fyrir okkur hvort folkid fyndi af okkur hasslyktina sem angadi af okkur eftir bilferd fyrri dags.
Vorum komnar til Windhoek snemma um morguninn og drifum okkur tha a gistiheimilid okkar - sem reyndist svo ekki eins skemmtilegt og vid heldum - fengum ad gista i kompu sem var alika stor og frimerki og sofnudum vid utsja-utsja musik fra barnum. Svo vid akvadum ad skipta um gistiheimili daginn eftir og forum a alveg yndislegan stad thar sem vid erum enn - svo heimilislegt og saett. I dag kom svo Judith, thad var svo gaman ad sja hana, og a morgun er ferdinni heitid i eydimerkursafari - vei, vei, vei!
En nu er timinn minn buinn, skrifa meira seinna!