
Ég er nú meiri aulinn að fatta ekki fyrr að þetta er hægt! Tölvur eru nú kannski ekki alveg mín sterkasta hlið... Kannski ég laumi fleiri myndum frá Afríku hér inn smátt og smátt. Þessi mynd er af mér og 7. bekknum mínum. Þetta var yngsti hópurinn minn - algjörar snúllur!
Ætlunin var nú að koma upp myndasíðu, ég gerði tilraunir til þess úti en þær misheppnuðust allar þar sem netið mitt heima var svo hægt og óstabílt.
Annars er ég komin heim eins og flestir vita. Það var alls ekki eins erfitt að koma heim og ég bjóst við, þetta var frábær tímasetning fyrir heimferðina - hefði ekki getað verið meira tilbúin. Mánuði fyrr hefði verið alltof snemmt og mánuði seinna alltof seint! Afríka á þó enn stóran hluta af hjarta mínu og á ég án efa eftir að fara þangað aftur til lengri eða skemmri tíma. Þessi dvöl hefur skilið mikið eftir sig, ég held ég geti sagt hiklaust að Afríka skilur engan eftir ósnortinn - þetta er mögnuð álfa.
En það er alltaf gott að eiga Ísland að - litla klettinn úti í Atlantshafi - það var yndislegt að koma heim!
Ég er byrjuð að vinna á fullu hjá Nordjobb, alveg eins og í fyrra, og er flutt á Tjarnargötuna þar sem ég deili íbúð með Gunna og Svenna og henni Krúttínu Njálu. Allt er komið í fastar skorður og hið venjulega líf tekið við af ævintýrinu. En hver segir að hið venjulega líf geti ekki verið ævintýri líkast - á miðvikudaginn hoppa ég upp í vél til Noregs þar sem ég ætla að eyða páskunum með fjölskyldunni minni. Elín systir er nefnilega í lýðháskóla rétt fyrir utan Osló. Það verður nú ekki leiðinlegt!
Held ég segi þetta gott í bili. Næst fáiði kannski ferðasögu frá Noregi og kannski nokkrar myndir líka - norskar, afrískar eða bara bæði!