Katrín í Namibíu
 
 
Nú nota ég óspart þessa nýuppgötvuðu tækni...
29.4.06





Myndirnar eru úr öllum áttum, en eiga það þó sameiginlegt að vera allar teknar í Kenýa. Þær tala nú sínu máli, en svona til útskýringar þá eru á efstu myndinni ljón í leti í þjóðgarðinum Maasai Mara sem er frægasti og mest sótti þjóðgarðurinn í Kenya.

Á annari myndinni er Maasai fólk undir húsvegg heima hjá sér í Maasai Mara þjóðgarðinum. Maasai ættbálkurinn er sá ættbálkur sem er hvað fastheldnast í hefðir og lifir enn í dag eins og það hefur gert í aldaraðir. Meðal þeirra er ríkidæmi metið í fjölda kúa og drengir eru teknir í fullorðinna manna tölu eftir að þeir hafa barist við ljón...

Á þriðju myndinni er ég að vaska upp heima hjá mömmu Jowi. Nota til þess vatn úr brunninum sem er fyrir utan húsið þeirra og handsápu.

Á fjórðu myndinni er ég ásamt strákunum mínum í ellefta bekk - Jem, Preet, Rayner, Muna, Kim og Jordan.

Á fimmtu myndinni erum við Judith á munaðarleysingjahæli í Nakuru, hvor með sitt barnið - mér finnst við bara taka okkur nokkuð vel út...

Svo smelli ég smátt og smátt fleiri Afríkumyndum inn...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel