Komin heim...


...frá Ven. Var þar í steikjandi hita og sólskini í nokkra daga með vinnufélögum mínum sem koma héðan og þaðan frá Norðurlöndunum. Við Alma enduðum dvölina í Kaupmannahöfn á allrækilegum tónleikum með ekki minni hljómsveit en Radiohead. Það var gaman. Í morgun fórum við svo á stærstu útsölu í heimi. Ég keypti 3 boli, 2 peysur, 1 skyrtu og 1 kjól á korteri - geri aðrir betur. Ástæðan fyrir þessu kaupmeti var sú að við höfðum ekki meiri tíma á þessari risaútsölu (sem var á stærð við tveggja hæaða laugardalshöll). Við áttum nefnilega að fljúga heim rúmum tveimur tímum eftir að við mættum á útsöluna. Svo það var ekki um annað að ræða en að standa sig. Við vorum mættar út á völl 55 mínútum fyrir brottför, sem var bara feykinóg, allt mjög vel út pælt og tímaáætlanir okkar stóðust bara nokkuð vel.
Hér að ofan eru tvær myndir úr ferðalaginu, sú fyrri er af hinni ansi fótógenísku Ölmu og litlu lösnu randaflugunni sem hún fann. Hin er af okkur eftir Radiohead tónleikana.