Katrín í Namibíu
 
 
Mannlíf í Afríku
14.5.06





Hér koma myndir af kenýsku fólki. Þrjár af fólki af maasai ættbálknum í Maasai Mara og tvær af börnum á munaðarleysingjahæli í Nakuru.

Krökkunum á munaðarleysingjahælinu fannst mjög gaman að fá okkur í heimsókn. Þeim fannst skemmtilegast í heimi þegar maður var með stafræna myndavél og gat sýnt þeim myndirnar á eftir, þau hlógu og hlógu og hlógu þegar þau sáu myndirnar af sér. Sniðugt trikk sem ég mæli eindregið með!

Litli maasai strákurinn mændi upp á okkur hvítingjana, mikið hljótum við að hafa litið furðulega út í hans augum...

Daglegt líf í maasai þorpi, konurnar sjá um börn og bú á meðan karlarnir, jah, berjast við ljón...

Mér fannst soldið kómískt að sjá maasai mann lesa amerískt tískublað, vissar andstæður...

Strákurinn á andlitsmyndinni er tveggja ára, vegna næringarskorts þroskuðust beinin svo illa að hann byrjaði ekki að ganga fyrr en fyrir mjög stuttu. Í þau skipti sem ég fór á munaðarleysingjahælið sat hann iðulega grátandi á litlum bekk með blautan bossann og gat sig hvergi hreyft. Ég var mjög glöð þegar ég kom aftur á munaðarleysingjahælið eftir ferðina um Afríku og sá að hann var farinn að ganga, þá gat hann allavega hreyft sig úr stað - þrátt fyrir að bossinn væri ennþá blautur...

Ef þið hafið sérstakar óskir um þær myndir sem birtast hér á síðunni megið þið láta mig vita – hvað finnst ykkur mest spennandi að sjá? Dýrin, mannlífið, skólann minn, nemendurna, vini mína, landslagið...? Þið getið komið óskum á framfæri hér að neðan.

...og að lokum – ef ykkur langar í nordjobbara heim til ykkar í sumar þá megiði endilega hafa samband við mig, það eru nefnilega nokkrir enn heimilislausir. Nordjobbarar eru duglegt og skemmtilegt fólk frá hinum Norðurlöndunum sem dvelja á Íslandi yfir sumartímann. Þeir krefjast ekki annars en sérherbergis og eldhús-, klósett- og þvottaaðstöðu. Ef ykkur finnst þetta hljóma freistandi getiði pantað einn hjá mér!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel