Katrín í Namibíu
 
 
Jólamyndir frá Kenya...
5.6.06





...kannski ekki á réttum tíma en þar sem veðrið var með eindæmum gott í Kenýa um jólin finnst mér þessar myndir bara eiga ágætlega við.

Ég get ekki beint sagt að jólin í Kenýa hafi verið jólaleg en þau voru mjög skemmtileg engu að síður og sé ég alls ekki eftir að hafa eytt jólunum fjarri glaumi og glysi vestrænnar hluthyggju!

Kenýsk jólamessa er ólík þeim sem við eigum að venjast, kirkjan ekki mikið meira en 12 fm (álíka stór og herbergið mitt). Þarna sjáið þið stelpur sem syngja kenýsk jólalög og dansa af mikilli innlifun. Þetta var verulega skemmtilegt!

Jólamaturinn er einnig ólíkur því sem við eigum að venjast. Þarna er Janet, systir hans Jowi, að elda jólamatinn - chapati, sem eru pönnukökur ásamt tilapia sem var minn uppáhalds fiskur þarna úti! Maturinn er eldaður yfir opnum eldi í moldarkofa.

Jowi fékk ekki marga jólapakka, reyndar fékk hann bara einn – frá mér – Appelsínustelpuna eftir norska rithöfundinn Jostein Gaarder, jólaseríur og norsk jólaepli. Norska þemað var vegna sameiginlegra tengsla okkar við Noreg, en fyrir þá sem vita það ekki þá bjuggum við Jowi í sömu blokk í Oslo, en á mismunandi tíma!

Mamma Jowi er yndisleg kona. Þarna er hún í kirkjufötunum sínum, en konur af Luo ættbálknum, sem er ættbálkurinn sem Jowi og fjölskylda hans tilheyra, fara alltaf í hvítum fötum í kirkju. Við urðum góðar vinkonur og varð ég þess heiðurs aðnjótandi að eignast nöfnu innan fjölskyldunnar – kálfurinn Katrín fæddist skömmu eftir jól og fékk ég að sjá hana áður en ég hélt heim frá Kenýa. Hún var ósköp mögur blessunin en hin fallegasta kýr! Vonum að hún gefi vel af sér er fram líða stundir!

Kirkjan lét ekki mikið yfir sér eins og sjá má á þessari mynd. Hér hafa presturinn og krakkarnir sem mættu í messuna stillt sér upp fyrir framan myndavélina. Myndasyrpan eftir messuna er ansi löng en allir kirkjugestir vildu láta taka mynd af sér, trúlega í fyrsta skiptið sem margir kirkjugestir voru festir á filmu.

Læt þetta gott heita af Kenýskum jólum. Eins og sjá má voru jólin afar ólík því sem við eigum að venjast!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel