Var að koma úr hringferð. Tónleikar með Belle & Sebastian á Borgarfirði Eystri voru aðalástæða ferðalagsins en það vatt upp á sig - fór upp að Kárahnjúkum, slóst í hóp mótmælenda við Snæfell sem hrifu Sulo vin minn og ferðafélaga með sér svo að lokum varð hann eftir (fyrir hönd okkar beggja) og ég hélt ein áfram hringinn. Reyndar í góðum félagsskap megnið af leiðinni. Fyrst með Svía sem var í búðunum og er að gera heimildarmynd um það sem er að gerast á Kárahnjúkum og Bandarískum vini hans, þá með Hrund leikritaskáldi, kennara og náttúruunnanda, Dísu eðlisfræðingi og náttúruunnanda og Tristan litla syni hennar, síðan með þremur ítölum úr liði mótmælenda, þá með Akureyringi á leið á heimaslóðirnar og loks með tveimur Nordjobburum, þeim Antti, sem ég pikkaði ég upp á leiðinni og Petter sem við gistum hjá á Kambi í Eyjafjarðarsveit!
Ég læt þetta duga sem ferðasögu - hún var allskrautlegri og alveg efni í veigameiri færslu en ég læt þetta nægja sökum leti minnar.
Enn hef ég ekki heyrt hvernig Sulo hefur plummað sig við Kárahnjúka - en ég sá hann í fréttunum í kvöld, svo ég reikna með að hann sé á lífi.
...og fyrir þá sem hafa fylgst spenntir með framhaldssögunni úr fyrri færslum þá fékk Sulo miða á tónleikana!