Nú eru bara 3 dagar þar til ég fer í Evrópureisuna, sem hefur verið á teikniborðinu í mööörg ár. Byrja í Danmörku og Svíþjóð þar sem ég heimsæki vini og vandamenn, tek svo ferju yfir til Þýskalands þar sem ég mun (loksins) hitta nokkra vini sem ég kynntist í Þýskalandi m.a. Þórhildi og Tobias, sem er nú ekki leiðinlegt að segja frá! Þaðan er stefnan tekin á Pólland og svo á hin ýmsu lönd í A-Evrópu. Að lokum, þremur vikum fyrir heimför, flýg ég til Spánar þar sem ég hyggst stunda spænskunám í 3 vikur. Áætluð heimkoma er um miðjan ágúst. Það er ekkert svo slæmt að vera kennari...
Í kvöld megið þið svo endilega kíkja í heimsókn, er með smá kveðjugleðskap, svona til að klára áfengisbyrgðir og annað sem safnast hefur upp hjá mér!