Thá er ég loksins komin til Salamanca, eftir sex vikna aevintýralegt ferdalag um Evrópu. Kom hingad á sunnudaginn var eftir aegilega langt ferdalag i lestum og flugvélum. Sídasti áfangastadur okkar Hlínar var Zagreb í Króatíu. Thadan tók ég naeturlest til Feneyja - sem eru yndislegar, hafdi bara taepa tvo tíma til ad skoda mig um, verd ad fara thangad aftur - tók svo lest thadan til Mílanó og flaug svo frá Mílanó til Madridar. Var komin frekar seint til Madridar og tókst ad koma mér í gegnum nedanjardarkerfid á hostelid. Deildi herbergi med yndislegri danskri stelpu sem heitir Ann. Hún var ad hafa sig til fyrir naeturlífid í Madrid thegar mig bar ad. Thrátt fyrir ad vera ad deyja úr threytu eftir ferdalagid ákvad ég ad kíkja med henni og ástralskri stelpu í baeinn. Tókum metró, sem var stappfullur, settumst svo á pub á Plaza major og fengum okkur bjór og tapas og skemmtum okkur vel. Thegar vid svo aetludum ad borga tók ég eftir thví ad veskid var horfid. Thad hafdi einhver laumast í toskuna mína í metrónum og tekid veskid. Nú voru gód rád dýr. Ann - danska stelpan - hafdi unnid lengi sem guide svo hún fór strax í málid. Fórum inn á naesta hótel og fengum thar althjódlega símanúmerid hjá visa sem ég hrindi í og lét loka kortinu. Lítid mál, en nú var ég algerlega peningalaus. Var thó sem betur fer med debetkortid mitt annars stadar en í veskinu. Thurfti reyndar ad hafa uppi á leyninúmerinu ad thví sem tók smá tíma, svo í 3 daga lifdi ég á evrunum sem Ann var svo yndisleg ad lána mér. Eftir svefnlausa nótt hélt ég svo út á rútustod til, hitti yndislegan franskan gamlan mann í metrónum sem taladi vid mig a fransk/spaensk/ensku alla leidina. Var komin til Salamanca seinni partinn og tókst med einhverjum leidum ad finna íbúdina mína. Thad var yndislegt ad koma í íbudina vitandi ad ég aetti eftir ad vera á sama stad í meira en 3 naetur. Thad var enginn heima thegar ég kom, hitti ekki medleigjendur mína fyrr en í gaer og fyrradag, deili íbúd med kínverskum strák, s-afrískri stelpu og tveimur amerískum stelpum, sem eru reyndar ad fara á morgun og eru med kvedjupartí heima núna á eftir. Fór í skólann á mánudaginn var, líst ofsa vel á. Er í sex manna hóp, sem er óskop thaegilegt, madur er miklu virkari í tímum og laerir mun meira á thví ad vera í svona litlum hóp. Salamanca er yndisleg borg, ofsalega falleg. Gekk um borgina í dag med henni Marjo, sem er hollensk og er med mér í hóp, fengum okkur bjór og tapas milli thess sem vid kíktum í kirkjur og á nýlistasafnid hérna, sem er einstaklega skemmtilegt safn. Um helgina stefni ég svo á ad fara til Portúgal, jamm... er ekki alveg haett flakkinu...
Ég veit ad ég er med skrifraepu og thad nennir orugglega enginn ad lesa meira en ég aetla samt ad skrifa meira. Týndi dagbókinni minni á leidinni svo nú nota ég bloggid er eiginlega bara mín persónulega dagbók... sem allir mega lesa. Aetla sumsé ad halda áfram thadan sem frá var horfid í sídasta bloggi. Ég var komin til Brasov í Rúmeníu.
Í Brasov gistum vid á mjog heimilislegu hosteli í mjog skemmtilegu hverfi svolítid fyrir utan midbaeinn. Stelpan sem vann thar var skemmtilega skrýtin, taladi út í eitt og var naestum eins og ein af gestunum. Vorum í Brasov í tvaer naetur, fórum loks í Bran (Drakúla) kastalann - sem var aaallt of túristalegur, ekki thverfótad fyrir ferdamonnum, vard eiginlega fyrir miklum vonbrigdum, Rasov kastalann - sem var mun skemmtilegri og Sinaia kastalann, sem var eiginlega flottastur, fyrrverandi sumarbústadur kóngafólkisns og var alveg eins og madur ímyndar sér hallirnar í aevintýrunum. Fórum í thessa ferd med tveimur mjog skemmtilegum norskum strákum sem voru á sama hosteli og vid og fjórum stelpum frá S-Kóreu.
Frá Brasov fórum vid til menningarborgarinnar Sibiu, vorum reyndar einhverra hluta vegna mjog threyttar thar, eda dasadar í hitanum, thannig ad vid sátum mest á borum/kaffihúsum borgarinnar... sem er reyndar ofsalega falleg! Frá Sibiu fórum vid svo til Króatíu, sem er mjog long leid. Tókum lest til Timisoara í Rúmeníu. Thurftum ad bída thar heila nótt eftir lestinni til Belgrade í Serbíu svo vid settumst á útiknaepu og fengum okkur bjór. Thad var ekki mikid af fólki thar en tvo por á naesta bordi vid okkur. Yfirleitt erum vid ekki mikid ad passa uppá thad sem vid tolum um, enda skilur enginn thad sem vid segjum, en tharna var eins gott ad vid gaettum tungu okkar, vid vitum ekki fyrr en onnur stelpan kemur ad bordinu til okkar og fer ad tala vid okkur á íslensku. Hún var thá íslensk og gift Rúmena. Mjog skemmtileg tilviljun, hún er eini íslendingurinn sem ég hef hitt fyrir tilviljun á mínu langa ferdalagi. Knaepurnar lokudu uppúr midnaetti svo vid fundum okkur internetkaffihús og hengum thar til klukkan fimm um morguninn thegar vid komum okkur aftur á lestarstodina til ad taka lestina til Belgrade klukkan 6. Stoppudum thar í 2 tíma í óbaerilegum hita og tókum svo lest til Zagreb í Króatíu. Í Zagreb var hitinn líka óbaerilegur. Tókum dýrasta taxa sem vid hofum nokkurntíma tekid á ferdalaginu á hostelid okkar og dóum naestum... úr threytu og hita og svefnleysi... fórum sumsé snemma ad sofa. Vorum tvaer naetur í Zagreb, sem er ofsalega falleg borg. Ég veit ad ég segi thetta alltaf en thetta er engin lygi, borgirnar sem ég hef heimsótt eru hver annari fallegri! Eignadist uppáhaldsgotu í Zagreb, med fullt af litlum og saetum húsum med litlum og saetum borum, blómum, húsasundum og idandi skemmtilegt mannlíf. Hittum ofsa skemmtilegt Króatískt par á bekk vid thessa gotu sem vid fórum med á voda skemmtilegan reggae bar. Daginn eftir hittum vid svo mjog serstaka hollenska konu vid somu gotu sem var í Króatíu ad leita ad króatískum manni sem hafdi skutlad henni smáspotta í Hollandi og hún hafdi ordid ástfangin af. Hún vissi bara nafnid hans og var mjog bjartsýn á ad finna hann! Hehe, soldid fyndid. Í Zagreb skildu svo leidir, Hlín tók rútu til Rijeka til ad taka flug til Englands, en ég var eftir og tók svo naeturlest til Feneyja, eins og ég minntist á í byrjun. Eyddi sídustu klukkutímunum í Zagreb á althjódlegri thjóddansasýningu, ofsa gaman!
Jaeja, segi thetta gott ad sinni!
Hasta luego!
P.s. kommentakerfid virkar víst bara alls ekki...