Nytt lifsmark! En orstutt ad thessu sinni. Erum nu i Sibiu sem er litill baer i Rumeniu, sem er med meiru menningarborg Evropu i ar og thvi mikid um ad vera. I gaer voru t.d. utitonleikar med Julio Iglesias a adaltorginu, vid forum nu ekki, en heyrdum samt i honum.
Sidast thegar eg skildi vid ykkur var eg i Prag. Sidan tha hefur mikid vatn runnid til sjavar. Fra Prag (sem er skelfilega falleg en eiginlega alltof turistaleg) for eg med naeturlest til Varsjaar i heimsokn til Arturs vinar mins sem eg kynntist i Finnlandi. Bankadi uppa hja honum eldsnemma a laugardagsmorgni. Hann byr i kassalaga kommunistablokk i kommunistablokkahverfi thar sem allt litur eins ut, skil ekki ad haegt se ad rata a svona stodum. Varsja ber sterkan keim af kommunismanum, er oll i svona kossum, nema reyndar midbaerinn sem var algjorlega endurbyggdur eftir stridid i upprunalegri mynd. Hann er mjog fallegur en oneitanlega soldid turista- og gervilegur. Varsja er mjog lifandi borg, thad var fullt um ad vera gotuleikhus, utitonleikar og fleira. Var hja Arturi tvaer naetur. For svo thadan til Krakow.
Krakow er mjooog falleg borg, olikt Varsja kom hun tiltolulega heil ut ur stridinu. Thar gisti eg hja henni Mariu, fyrrum medleigjanda Thorhildar i Finnlandi, og er hun algjor hofdingi heim ad saekja. Thetta vara eins og ad gista a 5 stjornu hoteli, med morgunmat, tourist information og leidsogumanni. Var med serherbergi a nedstu haed i stora husinu sem hun byr i, herbergid er thakid bokum a alla kanta og verulega notalegt. Husid er auk thess skreytt med allskyns skulpturum, afi hennar var myndhoggvari og hefur gert slatta af styttum sem ma sja vidsvegar um borgina. For i dagsferd til Auschwitz, skelfilegt ad sja satt ad segja - thad hellirigndi allan timann sem eg var thar sem atti mjog vel vid. Fra Krakow for eg svo med rutu til Zakopane.
Zakopane er litill baer i Tatra fjollunum a landamaerum Pollands og Slovakiu, Pollandsmegin. Gisti thar a yndislegu gistiheimili. For i fjallgongu i Tatrafjollin, gekk inn langan dal upp skogivaxna fjallshlid upp i taeplega 1800 m haed, og svo nidur aftur hinu megin og aftur eftir fallegum dal, thar sem sja matti kyr a beit, hestvagna og litla saeta sveitabaei. For svo eldsnemma um morgun med rutu til Poprad i Slovakiu og thadan med lest til Bratislava thar sem eg hitti hana Hlin! Thad var oskop gaman ad hitta hana og vera ordin 'tvaer' thar sem thad er stunudm einmanalegt ad vera ein a ferdalagi!
Spokudum okkur i Bratislava um kvoldid, lobbudum upp i kastalann og bordudum svo a Slovoskum veitingastad - fekk mer Slovaskan ost i adalrett, spes en gott samt. Hoppudum svo upp i lest til Budapest daginn eftir - eftir ad hafa fengid okkur morgunmat a kaffihusi. Get ekki sleppt thvi ad minnast a kaffidrykkinn sem eg pantadi mer thar fyrir misskilning. Aetladi ad panta mer espresso en pantadi vist i stadinn kaffidrykkinn Cafe cafe cafe med kaluha, carolans og fleiru, sprakk ur hlatri thegar eg fattadi thetta, ekki sist thegar eg smakkadi hann, hann var ogo godur!
Jaeja, held eg verdi ad haetta nuna, skrifa framhaldid naest thegar eg kemst i almennilega tolvu. Tha mun eg skrifa um Ungverjaland og Rumeniu og trulega Serbiu lika thar sem ferdinni er heitid thangad nuna a eftir!
Vats, thetta vard adeins lengra en eg bjost vid! Kvittid endilega fyrir ykkur thid sem nenntud ad lesa alla leid hingad, th. e. thid sem notid firefox, kommentakerfid virkar vist ekki lengur i explorer...
Bless i bili!