Katrín í Namibíu
 
 
Loksins lífsmark frá Namibíu.
26.7.08
Jæja... er nú búin að vera hér í viku og líst bara vel á. Hálfótrúlegt reyndar að það sé bara vika síðan ég steig aftur fæti á afríska jörð, mér finnst ég hafa verið hérna miklu lengur. Lífið hérna leggst bara vel í mig og eru allar aðstæður eins og best verður á kosið. Ég bý í þriggja herbergja íbúð, reyndar í svolítilli fjarlægð frá miðbænum en í þægilegu hverfi. Í íbúðinni er allt til alls, meira að segja lítill og notalegur garður sem snýr í norður og þar er því sól allan daginn (jább, er nefnilega hinumegin við miðbaug og sólin þess vegna í norður, svolítið skrýtið að venjast því, er stundum áttavilt vegna þessa). Íbúðin tilheyrir hóteli sem er hér hinu megin við götuna og eru eigendurnir mjög almennilegir. Ég get farið þangað í morgunmat þegar ég vil og notað alla þá þjónustu sem hótelið hefur uppá að bjóða, ekki amalegt. Íbúðin er í lítilli raðhúsaþyrpingu sem er afgirt með rafmagnsgirðingu. Svolítið skrýtið, en hér eru öll hús vel girt, ýmist með rafmagnsgirðingu eða gaddavír. Svo hef ég bíl til afnota frá Þróunarsamvinnustofnun. Hér er vinstri umferð og það var svolítið skrýtið fyrst að keyra vinstra megin. Ég var alltaf að fálma eftir gírstönginni hægra megin við mig (með nokkra marbletti á hægri hendi) og svo var soldið erfitt að venjast hægri beyjunum. En nú gengur þetta alveg eins og í sögu, tók enga stund að venjast þessu.

Mér líst bara vel á vinnuna, er reyndar ekki byrjuð að gera mikið ennþá, er aðallega að lesa mig til um þau verkefni sem eru í gangi. Fór reyndar með Villa (umdæmisstjóra), Davíð (verkefnisstjóra) og Patriciu (ráðgjafa) norður í land á miðvikudaginn í sýslu sem heitir Omusati. Fórum á fund með sýsluyfirvöldum og fólki úr ráðuneytinu til að ræða um leikskóla sem Þróunarsamvinnustofnun ætlar að byggja í sýslunni. Þessi sýsla er rétt við landamæri Angóla, í um 1000 km fjarlægð frá Windhoek og við flugum báðar leiðir sama daginn. Það var mjög gaman að fljúga yfir hálfa Namibíu, ekki ský á himni (frekar en venjulega) og því hægt að virða landið fyrir sér. Flugum m.a. yfir Etosha þjóðgarðinn, sem er einn sá stærsti í Afríku held ég bara. Þessi ferð í heild sinni var öll fremur súrrealísk. Að vera á mikilvægum fundi með mikilvægu fólki í miðri Afríku var svoítið skrýtin tilfinning.

Á mánudaginn er ég svo aftur á leið norður í land. Í þetta skiptið í bæ, líka við Angólsku landamærinn, sem heitir Rundu. Þangað eru rúmir 700 km og við munum keyra í þetta skipti. Við verðum þar fram á miðvikudag að skoða skóla með heyrnleysingjadeild sem ÞSSÍ ætlar að styrkja, en eitt verkefnið sem er í gangi hér snýr að heyrnarlausum, m.a. uppbyggingu skóla og leikskóla fyrir heyrnarlausa, þjálfun túlka, táknmálskennslu, gerð námsefnis o.fl. Mjög spennandi.

Jæja… ætli ég segi þetta ekki bara gott í bili héðan frá Namibíu. Ætla að halda áfram að sleikja sólina út í garði. Á morgun kíki ég svo kannski út fyrir borgina í göngutúr, en umhverfið allt um kring er mjög fallegt, hæðir og hólar sem sjást hringinn í kringum Windhoek. Um kvöldið fer ég svo á tónleika með henni Mariu sem er gjaldkerinn á skrifstofunni. Það er namibísk hljómsveit að spila, spennandi.

Endilega skiljið eftir skilaboð hérna að neðan! Það er svo gaman að fá kveðju að heiman.

Knús og kossar frá Namibíu,

Katrín
Skrifaðu hér
Anonymous Nafnlaus:
3:25 e.h.
Jæja, gott að heyra að þér líði vel í Namibíu, hlakka til að lesa meira :) Kær kveðja (ekki "að heiman" heldur frá Kíl), Michael
6:18 e.h.
Hæ Katrín mín, ofsalega er gaman að "heyra" frá þér og gott að vita að þér líst vel á allt saman. Ég verð svo sannarlega fastagestur hér á síðunni...:) Kv. Vala Guðný.
Anonymous Nafnlaus:
9:13 f.h.
en gaman að fá fréttir af þér, ég er búin að hugsa mikið til þín. þetta hljómar allt saman ægilega spennandi, verður án efa frábær tími - njóttu hans vel! hlakka til að fá reglulegar fréttir :)
ástarkveðja frá berlín,
þórhildur
Anonymous Nafnlaus:
2:01 e.h.
Sæl elsku Katrín og takk fyrir að bjóða mér á bloggið þitt. það verður spennandi að fylgjast með þér á þessum framandi stað. Farðu varlega elsku stelpa :) Hlakka til að lesa meira.
kv Þórhalla
3:33 e.h.
Frábært að þú sért byrjuð að blogga aftur um ævintýrin í Afríku :) Ég var einmitt að pæla í því um daginn þegar ég var að horfa á Blood Diamond að flest það sem ég veit um daglegt líf í afríku er komið frá þér ;) Því mjög gott að þú haldir áfram að uppfræða íslendinginn í danaveldi um framandi slóðir :)
Blogger Roel:
4:29 e.h.
Flott blogg! :D

En mér finnst að það vantar "Skrifaðu hér" linkur hjá botninum. ;P
6:01 e.h.
Þú ert nú bara yndi litla fiðrilið mitt;-) hafðu það sem allra best í solríku Afríku, kveðja frá Selfossi - bráðum New York;-)
Margrét
Anonymous Nafnlaus:
8:01 e.h.
gott að heyra að allt gangi vel og að þér líði vel kæra frænka. Ég get ímyndað mér að svona flugferð sé algjört ævintýri, væri til í að upplifa það! Ég held áfram að fylgjast með, knúsar og kossar frá okkur í Amsterdam, þín Ingibjörg
Anonymous Nafnlaus:
10:16 f.h.
Ég verð sko án nokkurs vafa dugleg að kíkja hingað inn! Takk fyrir aðganginn! :)))

Knúsur,
Gógó
Anonymous Nafnlaus:
1:50 e.h.
Vá hvað ég er glöð að þú skulir vera komin með bloggið aftur svo maður geti fylgst með þér. Hlakka til að heyra meira frá ævintýrunum þínum þetta hljómar allt svo spennandi. Gott að allt gengur vel og þú hafir það gott.
Knús og kram
Margrét Björk
Anonymous Nafnlaus:
3:14 e.h.
Frábært! Gaman að fylgjast með þér! Myndi líka vilja búa á hóteli, ég er svo löt að þrífa heima hjá mér að nú er allt morandi í maurum og meira að segja komnir kakkalakkar :(

Vonandi var gaman á tónleikunum og góða skemmtun í ferðinni!

Kær kveðja frá Nica
Anonymous Nafnlaus:
10:59 e.h.
Hæ elsku Katrín mín !
Gaman að heyra frá þér og að þér líst vel á þetta allt saman, fljúgandi yfir landið á einum degi til að fara á fundi - ekki slæmt ;)
Gangi þér sem allra best og vertu dugleg að skrifa svo við í norðri getum fylgst með þér.
Knus og kossar
Ásta frænka
Anonymous Nafnlaus:
8:25 f.h.
SnIlLd :) Hafðu það sem allra best!
10:30 f.h.
Gaman að fá fréttir af þér og fylgjast með þér. Ég sit hérna og hlusta á Elínu spila á píanó og Signýju spila á tölvu og 25 stiga hiti úti. Kveðjur frá okkur Bubba.
10:57 e.h.
..::Ragnar frændi tékkar inn::..

Flug til Windhoek kostar einmitt 1000euro med lufthansa frá Frankfurt...

..:: Ragnar frændi tékkar út::..

ps: við Elín keyptum okkur VW rúgbrauð um daginn og þér er boðið í bíltúr!
Blogger pixy:
12:34 f.h.
Komst loksins inn, frábært!
Hlakka til að fylgjast með og kannski sjáumst við síðar meir...

Bestu,
Herdís
6:13 e.h.
Hvað er nú þetta. Hélt að þú þyrftir að búa í moldarkofa og borða lókal mat.. en þetta virðist vera algjör lúxus hjá þér ;)

En mjög gaman að þetta gengur vel hjá þér og að þér lítist vel á!
Anonymous Nafnlaus:
11:01 e.h.
Hæ Katrín mín
Mikið er ég glöð að þú skulir ætla að halda úti bloggi á meðan þú ert úti :-) Það væri líka ofsa gaman ef þú gætir skellt inn einhverjum myndum, svona svo að við sjáum umhverfið þitt betur fyrir okkur ;-)

Mér þykir þú annars góð að vera búin að venjast vinstri umferðinni svona fljótt. Ég efast um að ég gæti nokkurn tíman vanist henni, hehe :-)

Knús og kossar
Kv. Jóhanna
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel