Með í ferð...
Sit hérna í sófanum mínum klukkan sex á sunnudagsmorgni og skrifa ykkur örstutta línu. Ég var ekki að koma af djamminu, enda fátítt að fólk hér um slóðir djammi til klukkan sex, heldur er ég á leið í langa vinnuferð. Planið var að leggja af stað klukkan hálfsjö en svo fékk ég rétt í þessu sms frá henni Patriciu, konunni sem ég er að fara með í ferðina, þar sem hún spurði hvort það væri í lagi að við leggðum af stað klukkan hálfátta af því hún kæmist ekki út úr bílskúrnum sínum… þannig að ég ákvað að nota þennan extra klukkutíma sem ég vann mér inn og blogga.
Það er svolítið fyndið með tímann hérna, þó það sé ekki nema eins klukkutíma munur, þ.e. Namibía er einum klukkutíma á undan Íslandi núna (en verð tveimur á undan í september þegar sumartíminn byrjar) þá er tímamismunurinn í raun miklu meiri þvi dagsritminn er allt annar. Fólk vaknar klukkan fimm-sex á morgnanna og fer að sofa klukkan átta-níu. Ég er algjörlega komin inn í þennan ritma, er yfileitt vöknuð rúmlega sex og sofnuð um tíu. Enda birtir hér um klukkan sex á morgnana og dimmir um klukkan sex á kvöldin, þannig að þegar ég fer að sofa er búið að vera kolniðamyrkur í nokkra klukkutíma. Þegar það er myrkur þá eru afar fáir á ferli enda ekki fátítt að myrkraverk eigi sér stað í skjóli nætur. Windhoek er nú samt með friðsælli borgum í Afríku svo það er ekkert mikið að óttast svo sem (hef nú samt heyrt ýmsar sögur, en það er bara eins og gengur og gerist, maður er hvergi óhultur).
En já, ég er semsagt á leið í langt ferðalag. Kem ekki til baka fyrr en miðvikudaginn 27. ágúst, eftir eina og hálfa viku. Ástæða ferðarinnar er að það er að fara í gang stórt leikskólaverkefni hjá okkur í 4 sýslum sem flestar eru í norðurhluta Namibíu og þess vegna mjög langt frá Windhoek. Við ætlum semsagt að hjálpa til við uppbyggingu leikskólamála í sýslunum, þjálfa starfsfólk og sjá til þess að aðstæður í leikskólunum séu í lagi. Leikskólamál hér í Namibíu eru ekki til að hrópa húrra fyrir enda styður ríkið ekki við leikskólamál svo neinu nemi. Í hverri sýslu verður einn fundur með sýsluyfirvöldum og einn þriggja daga skipulagsfundur með þeim sem koma að leikskólamálum í sýlsunni. Í þessari ferð verða þrír fundir, svo fer ég seinna í fleiri ferðir til að hafa fleiri fundi, ekki amalegt að vera í vinnu sem krefst svona mikilla ferðalaga. Ég hef verið skipaður sérlegur fundarritari á öllum fundunum svo það er eins gott að vera vel vakandi og skrifa og skrifa…
En ætli ég segi þetta ekki gott frá Namibíu í bili. Takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta, ég hlakka til að lesa öll nýju kommentin þegar ég kem til baka úr ferðalaginu☺
Knús og kossar,
Katrín