Katrín í Namibíu
 
 
Ráðstefna, brúðkaup o.fl. í Ovambolandi
31.8.08
Ég verð nú eiginlega að blogga pínulítið… annars verður mánuður á milli blogga og það er allt of langt. Ég er semsagt komin heim úr ferðalaginu, kom á þriðjudaginn var, og er á leið í næsta bara núna á eftir. Ég verð í burtu í rúma viku, en ferðatilhögun er með aðeins öðru sniði en síðast. Ég er reyndar að fara á samskonar skipulagsfund og síðast, bara í annarri sýslu, en svo ætla ég líka að fara í safarí með finnsku vinum mínum og nokkrum þýskum í Etosha þjóðgarðinn, sem er sá stærsti í Namibíu, og þó víðar væri leitað! Stefnan er að hitta hópinn á miðri leið, vona að það gangi vel. Reyndar er smá spenna í þessu öllu saman. Þjóðverjarnir sáu um að bóka allt og mér skilst að það sé bara pláss fyrir 8 manns á tjaldstæðinu sem þeir bókuðu, ég er sumsé níunda manneskjan í hópnum. Skil ekki alveg hvernig er ekki hægt að koma einum fyrir í viðbót en ég held því fram að þetta sé þýsk smámunasemi… Namibíumenn eru aflsappaðri en svo. Læt ykkur vita hvernig fer og hvort ég verði rekin út…

Annars var ferðin sem ég var að koma úr hin skemmtilegasta. Ég var allan tímann með henni Patriciu, ráðgjafa ÞSSÍ í leikskólamálum hér í Namibíu. Patricia er mjög fyndin kona. Hún er bresk en hefur búið í Namibíu í hátt í 10 ár og er nánast orðin namibísk. Fólk heldur iðulega að hún sé mamma mín þegar við erum að ferðast saman… sem fer svolítið fyrir brjóstið á henni, henni finnst það ellimerki (veit ekki hvernig ég á að taka því, á hinn bóginn halda flestir namibíubúar að ég sé 18-20 ára sem vegur upp á móti☺). Hún er nú samt komin hátt á sextugsaldur svo tæknilega séð gæti hún alveg verið mamma mín. Patricia er einhleyp, barnlaus og eiturhress, fær sér í glas á hverju kvöldi og talar út í eitt, svo fyrir mér er hún meira eins og jafnaldra en móðir.

Við byrjuðum á að fara á lítinn fund norður í Kunene sýslu. Þar búa Himbarnir m.a. sem er einn frumstæðasti ættbálkur í Namibíu, og bara allri Afríku, má segja. Þetta er mjög spennandi hópur, hirðingjar sem flakka um, búa í tjöldum og klæðast skinni. Segi ykkur meira frá þeim seinna. Svo fórum við í næstu sýslu sem heitir Omusati og héldum tveggja daga skipulagsfund þar með fullt af fólki, sýsluyfirvöldum, ráðuneytum, frjálsum félagasamtökum og fleira fólki sem tengist leikskólamálum þar. Það vildi svo skemmtilega til að Patriciu var boðið í brúðkaup í næsta bæ helgina eftir fundinn svo í stað þess að bruna heim fórum við í namibískt brúðkaup, sem var skemmtileg menningarveisla. Fyrir norðan tilheyra nánast allir ættbálknum Ovambo, sem er fjölmennasti ættbálkurinn hérna, um helmingur Namibísku þjóðarinnar tilheyrir honum. Brúðkaupið var, að mér skilst, ekta Ovambo brúðkaup. Það kom mér samt mikið á óvart hvað umgjörðin var Amerísk. Brúðarmeyjar í agalega flottum satíndressum, brúðhjónin eins og klippt út úr amerísku tímariti, veislan í risa tjaldi fyrir utan hús föður brúðarinnar og risa hlaðborð með hinum ýmsu kræsingum. Það eina sem var óamerískt var fatnaður annarra kvenna í veislunni, en flestar voru klæddar í ekta Ovambo dress, en allar í stíl, sem er víst siður þar um slóðir. Ég var mikið að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að klæðast, en ákvað að lokum að fjárfesta í Ovambo dressi til að skera mig nú ekki úr. Við Milo og Jenny á skrifstofunni stungum af frá ráðstefnunni og fórum í verslunarleiðangur. Ég kom til baka í glæsilegu Ovambo dressi og hafði pantað annað sem ég mátti sækja daginn eftir. Ráðstefnugestir ráku upp stór augu þegar ég mætti í dressinu og gekk ég þar á eftir undir nafninu Katrina Shilongo, sem er víst algengt Ovambonafn. Ég hef því miður ekki tíma til að hlaða inn myndum af þessu öllu saman en ég mun gera það við fyrsta tækifæri.

Ætli ég neyðist ekki til að segja þetta gott að þessu sinni, ég þarf að klára að pakka og svo að bruna í bæinn þar sem Patricia og aðrir ferðafélagar bíða mín. Svo tekur við 8 klukkutíma akstur í Ovamboland á ný...

Takk fyrir öll kommentin og haldið endilega áfram að vera svona dugleg!

Knús í bili,

Katrín
Skrifaðu hér
Anonymous Nafnlaus:
4:59 e.h.
Mig langar að sjá myndir af Ovambo dressinu :)
Anonymous Nafnlaus:
7:23 e.h.
Hæ hæ :)
Gaman að lesa um ævintýri þín! Eru Ovambo konurnar þær í miklu kjólunum sem vöfðu öllum efnunum utan um sig þannig að það voru fleiri tugir metra af efni í kjólnum ? Eða þessar berbrjósta ? ;) Nei nei, bara smá svartur húmor.....
En hafðu það gott áfram og hlakka til að sjá myndir!
Knus og kossar frá DK
Ásta
8:11 e.h.
hæ elsku Katrín!
bara að kvitta fyrir mig , láta þig vita að ég kíki nú auðvitað á bloggið þitt þó ég sé ekki mjög dugleg að skilja spor eftir mig... rosa gaman að fylgjast með þessu ævintýri þínu!:) knús og kossar Elín
Anonymous Nafnlaus:
12:18 e.h.
Vá hlakka til að sjá myndir, spennandi að sjá hvernig þetta dress sem þú keyptir lítur út. Takk fyrir okkur, fékk pakkann um síðustu helgi, gangi þér vel á ferðalaginu. Heyrumst!
Anonymous Nafnlaus:
11:53 f.h.
Hlakka til að heyra meira af Himbunum :)
6:18 e.h.
Elsku Katrín mín

Gaman að fylgjast með þér í Afríku
og spennt að sjá mynd af þér í Ovambobúningnum.
Langar að fara heyra í þér í síma, verð heima á þriðjudagsmorgun 9. sept.

kveðja og knús
mamma
Anonymous Nafnlaus:
1:04 e.h.
hallo miss Shilongo, eins og fleirum langar mig líka mjög að sjá hvenig Ovambo dressið klæðir þig ;) Það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt og gott að heyra í þér í gær á msn-inu.

Knúsar frá okkur í vesturbænum, þín Ingibjörg
Anonymous Nafnlaus:
10:50 e.h.
Flott nýja útlitið á blogginu þínu og æðisleg mynd af þér með krakkahópnum :)

Knúsur,
Gógó
Anonymous Nafnlaus:
10:50 e.h.
Flott nýja útlitið á blogginu þínu og æðisleg mynd af þér með krakkahópnum :)

Knúsur,
Gógó
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel