Katrín í Namibíu
 
 
Ondangwa, Etosha o.fl.
11.9.08
Jæja, komin heim úr ægilega skemmtilegu ferðinni minni. Eins og ég sagði ykkur síðast fór ég á fund í nokkra daga norður í landi og slóst svo í hóp með finnsku og þýsku vinum mínum og fór í Etosha þjóðgarðinn.

Ég hitti föruneytið, Patriciu (sem ég er búin að segja ykkur frá), Ndesi (ráðgjafa) og Ursulu (sem vinnur hjá kynja- og barnamálaráðuneytinu) snemma á sunnudagsmorgni og héldum við beina leið norður til Ondangwa þar sem skipulagsfundurinn fyrir leikskólamál í sýslunni, eins og sá sem ég var á í síðasta ferðalagi, var haldinn. Fundurinn er svosem ekkert í frásögur færandi… nema kannski fyrir þær sakir að Davíð verkefnisstjóri var lasinn fyrir fundinn svo allt leit út fyrir að hann kæmist ekki vegna veikinda. Ef svo hefði farið hefði ég fengið meiri ábyrgð, haldið fyrirlestra o.fl. en svo fór nú ekki, Davíð hresstist í tæka tíð og var ég ansi fegin. Fundurinn var sem fyrr á miklu lúxushóteli. Ég veit það ekki… mér líður alltaf pínulítið skringilega á svona lúxushótelum. Ég tala nú ekki um þegar markmiðið fundanna er að hjálpa fólki sem á ekki fyrir salti í grautinn… anyhow, svona er þetta...

Eftir fundinn fékk ég far hjá henni Victoriu í bæinn þar sem ég ætlaði að hitta finnana og þjóðverjana daginn eftir. Bærinn heitir Otjiwarongo og var Milo, vinnufélagi minn, svo sæt að redda mér gistingu hjá frænku mannsins hennar sem býr þar. Fyrst sagði hún reyndar systur sinni, en hér er ekki gerður mikill greinarmunur á systrum, frænkum, mágkonum o.s.frv. þetta eru allt systur. Victoria vinnur hjá frjálsum félagasamtökum sem kallast WIMSA (Working Group of Indigenous Minorities in Southern Africa) sem eru samtök sem styðja San fólkið, sem er víst eini þjóðernishópurinn sem hefur verið í Namibíu frá “upphafi”. Hvenær upphafið hófst veit ég ekki. San fólkið er mjög mikill jaðarhópur sem nýtur ekki sömu réttinda og aðrir þegnar landsins, a.m.k. ekki á borði, bara í orði. Þeir eru safnarar og veiðimenn, einn fárra hópa sem enn byggja afkomu sína á því, þó margir hafi reyndar snúið sér að nútímalegri lifnaðarháttum. Þeir hafa mátt þola ýmislegt óréttlæti eins og hefur tíðkast hér í álfunni, t.d. voru heimkynni þeirra áður í Etosha þjóðgarðinum en þeir voru hraktir þaðan þegar Etosha var friðað (fyrir nákvæmlega 100 árum í ár og er því elsti þjóðgarður í Afríku) og höfðu þaðan í frá ekkert ákveðið land. San fólkið er, auk Namibíu, í S-Afríku, Botswana og Angóla.

Með í för hjá Victoríu voru Alexía sem vinnur líka hjá WIMSA, Ursula (sú sama og síðast), önnur stelpa sem ég man ekki hvað heitir og hún Samantha, 4 ára dóttir hennar Victoriu. Það kemur kannski ekki mörgum á óvart, en Afríka er soldið langt á eftir þegar kemur að umferðarmenningu og öryggi farþega ekki alltaf í fyrirrúmi. Mér hlotnaðist sá heiður að sitja í framsætinu og fékk það mikla ábyrgðarhlutverk að sitja með hana Samönthu í fanginu. Það var 5 klukkustunda akstur til Otjiwarongo og sat ég með hana alla leiðina. Samantha er algjörlega yndisleg, við vorum að lesa og teikna og lita og spjalla alla leiðina. Victoria stoppaði á nokkrum stöðum á leiðinni til að taka fleira fólk uppí, held við höfum verið hátt í tíu manns í bílnum þegar mest var, þeir sem ekki komust fyrir inni voru aftan á pallinum! Svona er Afríka. Sem betur fer gekk allt saman vel en að keyra á þjóðvegunum er dauðans alvara.

Þegar ég kom á áfangastað, í bæinn Otjiwarongo, fór ég beint til hennar Floru “systur” Milo. Hún býr í stóru húsi með frænku sinni sem er 13 ára. Þær stjönuðu við mig og ég svaf eins og steinn á stofugólfinu þeirra. Daginn eftir hitti ég svo hersinguna sem ég fór með í Etosha. Saana og Jussi frá Finlandi, Desiree, Kim, Marius, Christopher og Christian frá Þýskalandi og Gosia pólska kærastan hans Christians. Við Saana, Jussi og Christopher vorum saman í bíl og restin í öðrum og skemmtum við okkur konunglega. Sungum, bulluðum og fífluðumst út í eitt. Allt gekk eins og í sögu, það var nóg pláss fyrir mig í tjöldum og bílum svo áhyggjur mínar reyndust óþarfar. …og allir voru með eindæmum almennilegir og eru þjóðverjarnir, sem ég þekkti ekki mikið fyrir ferðina, orðnir ágætir vinir mínir, sérstaklega Christopher sem er algjörlega kostulegur! Við spunnum saman upp ýmsar sögur, sem ég ætla nú ekki að fara út í hér og skemtum okkur konunglega. Svo sáum við fullt af spennandi dýrum, gíraffa, fíla, sebrahesta, nashyrninga o.fl. Ægilega gaman. Tjaldstæðin í Etosha eru þau flottustu sem ég hef séð, þau voru gerð upp í fyrra skilst mér, og eru algjörlega fyrsta flokks. Við grilluðum á hverju kvöldi, kjöt hérna er svo ódýrt að það liggur við að það borgi sig að borða kjöt á hverju kvöldi, sem dæmi má nefna að við Jussi og Saana keyptum þrjár svínahryggjasneiðar í pakka á 200 ISK sem er mjög eðlilegt verð. Þannig að ferðin var hin besta. Já, og svo sprakk á bílnum☺ En það var nú ósköp gott að koma heim… var úrvinda og er enn að ná mér…

Jæja, ætli ég hætti ekki hér. Enda búin að skrifa ansi mikið.

Knús til ykkar allra!

Katrín
Skrifaðu hér
Anonymous Nafnlaus:
11:41 f.h.
þvílíka draumaferðin, þetta hljómar ekkert smá vel. Sprungið dekk finnst mér nú eiginlega bara tilheyra. Ég veit þó ekki hvort ég væri tilbúin að fara með börnin mín út á þjóðvegina án bílstóla, spurning með þetta að aðlagast menningu og landi ;) ég held það gangi ekki að öllu leyti!

Knúsar úr íslensku haustveðri, þ.e. sól og smá kuldi, Ingibjörg
5:31 e.h.
gaman að heyra af þessari ævintýraferð ykkar:) knús og kram Elín
Anonymous Nafnlaus:
5:33 e.h.
Var ekki búin að kíkja hér lengi, hefur verið skemmtileg ferð. Knús frá baunalandi Heiðdís.
Anonymous Nafnlaus:
1:53 e.h.
Hæ Katrín mín
Greinilega skemmtileg ferð sem þú fórst í :-)
Knús, kossar & sakn
Kv. Jóhanna
Anonymous Nafnlaus:
3:02 e.h.
Jæja hvernig væri að fara að skrifa e-ð hérna inn ? Nenni nefnilega ekki að lesa skólabækurnar ;) Það er kominn 19.okt og ef mig minnir rétt þá er kominn gestur til þín.... :) Hlakka til að lesa næstu færslu um fleiri ævitýri!
Knus og kossar frá DK
Ásta frænka
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel