Katrín í Namibíu
 
 
Víííí, blogg
25.10.08
Já, ég held það sé löngu kominn tími á nýja færslu. Stefnan var að hafa ekki mikið meira en tvær vikur á milli blogga en ég hef svo sannarlega brotið þá reglu, um sex vikur síðan ég bloggaði síðast. Það hefur heill hellingur á daga mína drifið þessar sex vikur. Ég er búin að fara á fleiri fundi á hinum ýmsu stöðum í Namibíu, m.a. inn í Namibeyðimörkina þar sem ég fór á fund með afskekktu samfélagi, en stefnan er að setja í gang leikskólaverkefni þar. Ég held ég svindli svolítið í þetta skipti og skelli inn grein sem ég skrifaði fyrir Sunnlenska fréttablaðið um heimsóknina í eyðimörkina. Hér kemur hún:

Ég fór í síðustu viku í vettvangsferð inn í Namibeyðimörkina. Namibeyðimörkn er sögð elsta eyðimörk í heimi (þó sumir segi að Atacama eyðimörkin í Suður-Ameríku sé sú elsta ætla ég að leyfa Namib eyðimörkinni að státa sig af þeim titli, a.m.k. í þessum pistli). Segja má að Namibía sé ein stór eyðimörk þar sem Namibeyðimörkin þekur stóran hluta landsins auk þess sem Kalaharieyðimörkin, nær inn í austurhluta landsins. Þetta gerir Namibíu að einu þurrasta landi í heimi þar sem uppgufun er nánast jöfn úrkomu ár hvert. Þessa þrjá mánuði sem ég hef dvalið hérna hef ég varla séð ský á himni, hvað þá að það hafi rignt enda eru 300 sólardagar á ári, sem er mjög skrýtið fyrir Íslending sem er vanur sviptingum í veðri á hverjum degi.

Í eyðimörkinni býr hópur fólks sem kallar sig ƒ≠Aonin. Yfirstrikaða samasemmerkið stendur fyrir klikkhljóð, en tungumálið sem hópurinn talar kallast Damara/Nama og telst til Khoisan tungumála sem eru hin frægu klikktungumál sem ýmsir þjóðhópar í sunnanverðri Afríku tala. ≠Aonin hópurinn er mjög lítill, telur eingöngu 600 manns, og er mjög strjálbýll, lifir í litlum húsaþyrpingum eftir Koiseb ánni endilangri, sem er reyndar þurr meginhluta árs af fyrrgreindum ástæðum.

Mörgum vesturlandabúanum gæti þótt húsakynni ≠Aonin fólksins frumstæð. Þetta eru litlir bárujárnskofar, oftast með einu svefnherbergi, sem er eini hluti heimilisins sem er lokaður með hurð og þaki, matargerð fer fram yfir opnum eldi í litlu skýli og svo er opið rými þar sem fólkið vinnur hin ýmsu störf. Þegar horft er á þessi húsakynni utanfrá gæti maður haldið að eymdin ein blasi við innandyra. Sú er þó ekki raunin heldur er ótrúlega heimilislegt og notalegt þegar inn er komið. Þetta eru veiðimenn og safnarar sem lifa á því sem jörðin gefur af sér, karlarnir fara á veiðar og veiða villibráð s.s. sebrahesta eða antilópur og konurnar tína jurtir, aðallega ávöxt sem kallast !Nara (upphrópunarmerkið stendur fyrir annarskonar klikkhljóð) og er einhverskonar melóna sem vex í eyðimörkinni. Auk þess stunda margar fjölskyldur búskap, eiga geitahjörð eða rækta grænmeti.

Við kíktum í heimsókn hjá einni fjölskyldunni. Þar bjuggu mamma og pabbi með tvo litla stráka auk ömmu. Okkur var boðið í mat, fengum dýrindis antilópukjöt og pap, sem er soðið maísmjöl. Maturinn var ægilega góður, hann var að sjálfsöðgu borðaður með höndunum og smakkaðist fyrir vikið mun betur en ella.

Það er svo gaman að sjá, þegar maður kemur inn í samfélag eins og þetta, hvað fólk virðist ánægt með lífið og brosandi. Á meðan vesturlönd ganga í gegnum krepputímabil og þurfa því aðeins að fara að slaka á í lífsgæðakapphlaupinu þekkir stærstur hluti fólks í heiminum ekki annað en fátækt. Ég held að það sé mikilvægt að muna, á þessum síðustu og verstu, að peningar eru ekki allt. Þetta kann að hljóma klisjukennt en þegar maður býr í landi eins og Namibíu, þar sem stærstur hluti íbúanna lifir undir fátækramörkum, er maður minntur á þetta á hverjum degi.


Ég skrifa svo almennilegt blogg seinna!

Hafið það gott hvar sem þið eruð í heiminum!
Skrifaðu hér
1:13 e.h.
Það er ágætt að kreppan sé ekki að plaga Nambíu líka, það er fátt annað í fréttum á Íslandi núna. En finnur þú ekki fyrir því að þú fáir minna fyrir krónunarnar þínar þarna úti?

-Rúnar Steinn
Anonymous Nafnlaus:
8:06 e.h.
Knús til þín sæta. Fín grein hjá þér. Hafðu það sem best.
Anonymous Nafnlaus:
5:46 e.h.
Flott grein! Sá hana í Sunnlenska og klippti hana út ;-)
Hafðu það gott eskan mín!
Kv. frá DK
Ásta
Blogger Roel:
3:41 e.h.
How a wonderful new design!

Did you do it yourself?
Anonymous Nafnlaus:
4:17 e.h.
Hæ Katrín mín
Bara smá kvitt fyrir komuna :-)Vonandi nærðu að blogga aftur fyrir jól ;-)

*KNÚS*

Kv. Jóhanna
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel