Katrín í Namibíu
 
 
Svart-hvíta Namibían mín
14.3.09
Svarthvíta Namibían mín

Mér finnst það alltaf jafnmerkilegt hve lítil félagsleg blöndun á sér stað á milli svartra og hvítra Namibíubúa. Á vissum stöðum verður maður nánast eingöngu var við hvítt fólk en á öðrum stöðum er svarta fólkið í meirihluta. Sama er uppi á teningnum hvað varðar hverfi hér í Windhoek, í vissum hverfum býr nánast eingöngu svart fólk, í öðrum hvítt og svo eru það “lituðu hverfin” þar sem blendingarnir búa sem eru ljósbrúnir á hörund. Því miður þarf varla að taka það fram að svarta fólkið býr flest í fátækrahverfinu, Katutura (sem á máli eins ættbálksins þýðir ,,staðurinn þar sem enginn vill búa) og hvíta fólkið í ríku hverfunum, þar sem glæsihýsin eru girt með rafmagnsgirðingum og hundar gelta hver í kapp við annan til að fæla frá óæskilega gesti. Lituðu hverfin eru svo staðsett mitt á milli þeirra svörtu og hvítu og aðstæðurnar auk þess einhvers staðar mitt á milli. Það er engu líkara en um sé að ræða orsakasamhengi, því ljósari sem þú ert á hörund, því betri aðbúnað býrðu við. Það heyrir til undantekninga að maður sjái svart fólk í hvítu hverfunum, nema á vissum tímum dags þegar það er á leið til og frá vinnu þ.e. húshjálp, barnapíur eða garðyrkjufólk sem starfar á heimilum hvíta fólksins. Auk þess er sjaldgæft að sjá hvíta manneskju í svörtu hverfunum, nema um hjálparstarfsmenn eða ferðamenn sé að ræða. Þessi skipting er jafnframt skýr á mörgum veitingahúsum og kaffihúsum, það er hvíta fólkið sem situr til borðs á meðan svarta fólkið gengur um beina.

Það er hálfskrýtið að enn þann dag í dag sé vísað í hverfin með þessum hætti, þ.e. svart, hvítt og litað en þegar maður hugsar sig um þá eru ekki nema tæp 20 ár frá því að aðskilnaðarstefnunni lauk og Namibía fékk sjálfstæði, síðast Afríkuríkja. Að sjálfsögðu er skiptingin ekki eins skýr nú og á tímum aðskilnaðarstefnunnar en engu að síður virðist hún halda sér í meginatriðum. Það tekur töluverðan tíma fyrir hugarfarsbreytingu að eiga sér stað hjá heilli þjóð.

Þegar erlendir (hvítir) starfsmenn koma búa þeir í ríku hverfunum og keyra um á dýrum jeppum. Þegar erlendir (hvítir) ferðamenn koma hafa þeir efni á að gista á fínum hótelum, nota fína ferðamáta að ekki sé talað um flugmiðann, sem kostar töluvert meira en árslaun (svarta) meðaljónsins. Í ljósi þessa er ekkert undarlegt að margir haldi að allt hvítt fólk sé ríkt þegar þetta er raunveruleikinn sem blasir við þeim. Húðliturinn segir allt sem segja þarf.
Skrifaðu hér
Anonymous Nafnlaus:
10:11 f.h.
Jei! Tvær bloggfærslur sem ég hafði ekki lesið - mikið er alltaf gaman að lesa sögurnar þínar! :)

Knúsur,
Gógó
11:44 f.h.
Já manni finnst þetta ansi merkileg skipting!

Segi eins og Gógó, alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)

María í Lundi
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel